Útlit er fyrir rólegheitaveður víðast hvar í dag en möguleiki á skúrum á stöku stað. Austanlands verður þó þokusíld eða dálítil rigning. Veðurspáin er svohljóðandi:Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt í dag. Þokusúld eða dálítil rigning austanlands, annars bjart með köflum en skúrir á stöku stað. Hiti 4 til 12 stig að deginum, svalast fyrir austan.Norðaustan og norðan 5-13 m/s á morgun. Rigning eða súld á austanverðu landinu og þokuloft við norðurströndina með hita 3 til 9 stig. Bjart að mestu annars staðar og hiti 9 til 16 stig að deginum.