Stjórnvöld í Tasmaníu í Ástralíu hafa beðist afsökunar á þjófnaði á líffærum og líkamshlutum látinna einstaklinga sem átti sér stað á árunum 1966 til 1991. Líkamspartarnir voru teknir án leyfis frá fjölskyldum viðkomandi, afhentir háskóla og í sumum tilvikum sýndir opinberlega.