Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Xi á að hafa sagt Trump að Pútín ætti eftir að iðrast innrásarinnar í Úkraínu

Xi Jinping Kínaforseti mun hafa tjáð Donald Trump Bandaríkjaforseta þá skoðun sína að Vladimír Pútín Rússlandsforseti eigi eftir að iðrast innrásarinnar í Úkraínu. Pútín er væntanlegur í tveggja daga heimsókn til Kína í dag og sagður með fjölda samninga í farteskinu.Financial Times segir Xi hafa látið þessi orð falla á fundi þeirra Trumps í Beijing í liðinni viku og vitnar til ónafngreindra bandarískra heimildarmanna. Vitað er að leiðtogarnir ræddu málefni Úkraínu og að Trump hafi stungið upp á því að þeir þrír sneru bökum saman gegn alþjóðaglæpadómstólnum.Xi virðist með þessu öllu berorðari um afstöðu sína til innrásarstríðs Pútíns í Úkraínu en áður. Kínversk stjórnvöld hafa sagst hlutlaus gagnvart stríðsrekstrinum og hafa hvatt ríkin til friðarviðræðna en hafa ekki viljað fordæma innrási
Xi á að hafa sagt Trump að Pútín ætti eftir að iðrast innrásarinnar í Úkraínu
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd