Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stöðvaður réttindalaus á negldum dekkjum með röng skráningarnúmer

Lögregla að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már EiðssonEignaspjöll í úthverfi eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaður sem lögreglumenn stöðvuðu í miðborg Reykjavíkur reyndist réttindalaus auk þess sem undir bílnum voru nagladekk og hann á röngum skráningarnúmerum. Skýrsla var rituð um málið að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar. Nagladekkjanotkun leiddi til kæru á hendur öðrum ökumanni í miðborginni. Innbrotsþjófar voru handteknir þar um slóðir við iðju sína og stungið í fangaklefa. Þar gistu tveir í morgun.
Stöðvaður réttindalaus á negldum dekkjum með röng skráningarnúmer
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd