Alþýðusamband Íslands leggst gegn frumvarpi til laga um stofnun innviðafélags. Segir ASÍ í umsögn sinni um málið að umfang væntanlegra fjárfestinga og gjaldtöku sé óljóst og geti ASÍ ekki stutt frumvarpið þegar ekki liggi fyrir hver áhrif verða á endanum á gjaldtöku og samgöngukostnað heimila.