Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti varar bandarísk stjórnvöld við því að allar atlögur að eyríkinu komi af stað blóðbaði með óhugnanlegum afleiðingum.Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti flytur ávarp 16. apríl síðastliðinn.EPA / Ernesto MastrascusaForsetinn sagði þetta í færslu á samfélagsmiðlinum X og áréttaði jafnframt að Bandaríkjunum eða hvaða öðru ríki sem er stafaði engin hætta af Kúbu.Diaz-Canel birti færsluna í kjölfar þess að vefritið Axios sagði Rússa og Írana hafa sent kúbverskum yfirvöldum á fjórða hundrað árásardróna og að þau hygðust beita vopnunum gegn bandarískum skotmörkum. Þar voru sérstaklega nefnd herstöð Bandaríkjanna við Guantanamoflóa, bandarísk herskip og jafnvel Key West á Flórída.