Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Máli Musks gegn OpenAI vísað frá — vegna fyrningar

Níu manna kviðdómur í Bandaríkjunum úrskurðaði í gær að auðkýfingurinn Elon Musk, einn stofnenda OpenAI, hefði beðið of lengi með málshöfðun gegn tæknifyrirtækinu, sem hannaði snjallmennið ChatGPT, öðrum stofnendum þess og Microsoft.Musk hóf málið 2024, fjórum árum frá því hann lagði seinast eitthvað til fyrirtækisins. Það var of langur tími að mati kviðdómsins.Ákvörðunin leiðir af sér að dómstóllinn tekur ekki afstöðu til þeirra raka Musks að fyrirtækið hefði haft í frammi svik með þeirri stefnubreytingu að hefja hagnaðardrifna starfsemi þvert á upprunaleg markmið þess að deila hugbúnaði frítt og vinna aðeins til hagsbóta mannkyni öllu.Þróun tækninnar hefði átt að vera opið ferli. Musk sakaði fyrrum félaga sína þá Sam Altman og Greg Brockman um að hafa í eigin þágu nýtt 38 milljóna dala f
Máli Musks gegn OpenAI vísað frá — vegna fyrningar
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd