Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Varnarmálanefnd þingsins ræðir mögulega ógn af drónaflugi

Varnarmálanefnd finnska þingsins hyggst í dag ræða þá ógn sem virtist steðja að landinu vegna drónaflugs innan lofthelginnar aðfaranótt síðasta föstudags. Einnig stendur til að fjalla um leiðir til að bæta samskipti milli stofnana virðist fjölþáttaógn steðja að Finnlandi.YLE segir að varnarmálaráðherrann Antti Häkkänen hafi verið boðaður á fundinn ásamt innanríkisráðherranum Mari Rantanen og Timo Herranen, yfirmanni flughersins.Fyrir dagrenningu á föstudag var lýst yfir tímabundnu hættuástandi, flugi beint frá alþjóðaflugvellinum í Helsinki og höfuðborgarbúar og íbúar Uusimaa-héraðs beðnir að halda sig innandyra uns hættan teldist yfirstaðin. Nokkrar herþotur voru sendar á loft í öryggisskyni. Seinna kom á daginn að enginn fótur var fyrir drónafluginu.Fjölþáttaógnir felast í óhefðbundnum h
Varnarmálanefnd þingsins ræðir mögulega ógn af drónaflugi
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd