Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tímabundin heimild til kaupa á rússneskri olíu framlengd öðru sinni

Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur tilkynnt að það framlengi á ný til þrjátíu daga sérstaka undanþágu frá banni við kaupum á rússneskri olíu.Heimildin, sem rennur út 17. júní, takmarkast þó eins og áður við kaup á olíu sem nú þegar er um borð í rússneskum skipum á hafi úti. Þeim ríkjum sem eru í hvað viðkvæmastri stöðu gefst tækifæri til að nálgast rússneska olíu, sagði fjármálaráðherrann Scott Bessent þegar hann tilkynnti um framlenginguna í færslu á samfélagsmiðlum.Hann sagði olíuna engum nýtast í tönkum skipa á siglingu. Þetta er í annað sinn sem Bandaríkin framlengja heimildina sem upphaflega var veitt í mars til að bregðast við olíuskorti vegna stríðsins gegn Íran.Líkt og áður eru einstaklingar og fyrirtæki frá Íran undanþegin, einnig frá Norður-Kóreu, Kúbu og þeim svæðum Úkraínu s
Tímabundin heimild til kaupa á rússneskri olíu framlengd öðru sinni
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd