Bandaríska sóttvarnarstofnunin hefur ákveðið að auka varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir útbreiðslu ebólu, meðal annars með því að skima flugfarþega sem koma til landsins frá þeim svæðum þar sem ebólufaraldur geisar og stöðva vegabréfsáritanir þangað tímabundið.Einnig verði innleiddar takmarkanir á komu útlendinga sem hefðu síðustu þrjár vikur ferðast til Úganda, Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó eða Suður-Súdan. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna faraldursins í Kongó, þar sem minnst 91 hefur látistog 350 sýkst.Einn Bandaríkjamaður hefur greinst með veiruna og sóttvarnarstofnunin segir til standa að flytja hann til Þýskalands til umönnunar. Ætlunin er að koma sex Bandaríkjamönnum til viðbótar brott frá Kongó til rannsókna.Mat stofnunarinnar er að