Rússnesk stjórnvöld eru vongóð um góðan árangur af viðræðum forsetans Vladimírs Pútín við Xi Jinping Kínaforseta. Pútín heldur til Kína í dag til tveggja daga fundar við Xi, fast á hæla Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Tilgangur heimsóknarinnar er að styrkja vinaböndin og ræða mikilvægi hernaðarsamvinnu ríkjanna, samkvæmt tilkynningu frá rússneskum stjórnvöldum. Til stendur einnig að Pútín ræði viðskipti og efnahagsmál við forsætisráðherrann Li Qiang. Vesturlönd hafa lýst áhyggjum af vinfengi Kínverja og Rússa, ekki síst eftir að þeir síðarnefndu hófu innrásarstríðið gegn Úkraínu. Kínversk stjórnvöld hafa sagst hlutlaus gagnvart stríðsrekstrinum, hafa hvatt ríkin til friðarviðræðna en hafa ekki viljað fordæma innrásina.