Aftökur í Bandaríkjunum voru 47 í fyrra. Árið áður voru þær 25. Bandaríkin eru meðal þeirra landa þar sem beita dauðarefsingu og aftökum. Innan Bandaríkjanna voru aftökurnar flestar í Flórída. „Það sem við sjáum í Bandaríkjunum er að orðræða þar, orðræða Trumps er sú að það skuli beita dauðarefsingunni til þess að koma í veg fyrir glæpi og þetta virðist smitast út í samfélagið þannig að það er eins og fólk trúi því að dauðarefsingin geti verið einhvers konar hindrunartæki til að koma í veg fyrir glæpi og halda borgurunum öruggum þó að allar rannsóknir bendi til þess að dauðarefsingin geri það ekki,“ segir Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty International á Íslandi. AFTÖKUSVEITIR, BANVÆNT GAS OG LYF Ríkisstjóri Flórída, Ron DeSantis, er fylgjandi beitingu dauðarefsingar og hefur