Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump kveðst hafa hætt við stórfellda árás á Íran vegna vonar um friðarsamkomulag

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa hætt við fyrirhugaða stóratlögu að Íran vegna vonarglætu um að friðarsamkomulag að undirlagi Sáda, Katara og stjórnvalda í Sameinuðu arabísku furstadæmunum væri við sjóndeildarhringinn. Árás hefði verið á teikniborðinu eftir að klerkastjórnin hafnaði samningsdrögum Bandaríkjanna í gær sem óásættanlegum, líkt og öðrum þar á undan. Leiðtogar bandalagsríkjanna við Persaflóa hefðu hvatt hann til að halda aftur af sér bæði vegna þess að þau ættu í viðræðum við klerkastjórnina og að Íranar hefðu hótað þeim hefndaraðgerðum ryfu Bandaríkin og Ísrael næstum sex vikna gamalt vopnahléð. Leiðtogarnir hefðu sagt samkomulag í bígerð sem tryggði að Íranar kæmu sér ekki upp kjarnorkuvopnum, sem þeir segja aldrei hafa verið markmiðið. Trump hefur framlengt vopnahl
Trump kveðst hafa hætt við stórfellda árás á Íran vegna vonar um friðarsamkomulag
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd