„Tilfinningin er að það sé meira af fugli, það er svona það sem virðist blasa við en svo verður öll úrvinnsla á gögnum að leiða það í ljós, staðfesta. Og það verður bara spennandi að vita hver niðurstaðan verður,“ segir Halldór Walter Stefánsson, fuglafræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands.Hann hefur talið rjúpur á Austurlandi síðan í kringum aldamót, ásamt kollegum sínum á Náttúrustofu Austurlands.Rjúpan er talin að vori svo ástand stofnsins sé ljóst áður en veiðiheimildir eru gefnar út að hausti. Stofninn hefur sveiflast mikið í gegnum árin og stendur misvel milli landshluta, svo ólíkar veiðiheimildir eru gefnar út fyrir veiðisvæðin sex sem landinu er skipt í.Halldór segir rjúpuna njóta góðs af sögulegri lægð fálkans hér á landi, sem haldi mikið upp á rjúpuna.