Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óljóst hvort og hvenær verði farið í framkvæmdir við Landeyjahöfn

Landeyjahöfn hefur verið meira og minna lokuð það sem af er ári og bilun í Herjólfi gerir siglinguna lengri en vanalega. Staða samgangna til Vestmannaeyja var til umfjöllunar á opnum fundi umhverfis- og skipulagsnefndar í dag. GAGNRÝNIR SKORT Á GAGNSÆI OG FYRIRSJÁANLEIKA Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknar í nefndinni segir mikið öryggismál að tryggja samgöngur. Ástandið hafi líka bitnað illa á atvinnulífi í Vestmannaeyjum.„Og þessi óvissa með hvernig fjármögnun á varaskipi verður háttað, hvenær það er kallað út og svo auðvitað þessar langtímalausnir, hvað á að gera varðandi Landeyjahöfn og hvernig mun fjárfesting birtast í Landeyjahöfn, við verðum að hafa miklu meira gagnsæi í fjárfestingu og tímaáætlun og aðgerðum fyrir íbúa,“ segir Halla Hrund. FERJUMÁL EIGI AÐ VERA Í FORGA
Óljóst hvort og hvenær verði farið í framkvæmdir við Landeyjahöfn
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd