Þrír voru skotnir til bana þegar tveir táningar hófu skothríð við mosku í San Diego í Kaliforníu fyrr í kvöld. Einn hinna látnu starfaði þar sem öryggisvörður.Árásarmennirnir, sem voru 17 og 19 ára gamlir, eru einnig látnir. Þeir fundust í bíl fyrir utan moskuna og talið er að þeir hafi svipt sig lífi.Árásin var gerð við Islamic Center sem ku vera stærsta moska í San Diego-sýslu. Hún er talin vera hatursglæpur.