Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Samfylkingin og Óskalistinn í Norðurþingi ætla að hefja formlegar meirihlutaviðræður á morgun.Þetta staðfestir Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi, í samtali við fréttastofu.Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar féll í sveitarstjórnarkosningum um helgina. Samfylkingin bætti við sig manni og Óskalistinn, nýtt framboð sem leggur áherslu á málefni austanbyggða í Norðurþingi, fékk einn mann inn.Þessi fjögurra flokka meirihluti ætti sjö fulltrúa af níu í sveitarstjórn Norðurþings. Listi Vinstri grænna og óháðra og Miðflokkurinn eiga hvort tveggja einn fulltrúa.