Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta í fjórða sinn í sögunni eftir sigur í Síkinu í kvöld gegn heimamönnum í liði Tindastóls. Lokatölur 101-109. Grindavík hafði betur í úrslitaeinvíginu 3-1. Fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins síðan árið 2013.