Tveir menn hófu skothríð á fólk í og við mosku í San Diego í Bandaríkjunum nú undir kvöld. Báðir munu hafa verið skotnir til bana af lögregluþjónum, sem eru með mikinn viðbúnað á svæðinu og segist lögreglan hafa náð tökum á ástandinu. Óljóst er hve margir liggja í valnum.