Mikil nýliðun verður í nýrri borgarstjórn, sextán fulltrúar kveðja og nýir koma inn í staðinn. Kynjaskipting borgarstjórnar er jöfn – 12 karlar og 11 konur. Yngsti borgarfulltrúinn er nýorðinn 26 ára en sá elsti er 65 ára. Hver koma ný inn? Bjarni Guðjónsson, Brynjar Níelsson, Rúnar Freyr Gíslason, Guðný María Jóhannsdóttir, Albert Guðmundsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir og Bjarni Fritzson koma ný inn fyrir Sjálfstæðisflokkinn.Pétur H. Marteinsson, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Stein Olav Romslö fyrir Samfylkinguna.Björg Magnúsdóttir og Róbert Ragnarsson fyrir Viðreisn.Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalista.Ari Edwald, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir og Lárus Blöndal Sigurðsson koma ný inn sem fulltrúar Miðflokksins.Tveir flokkar þurrkuðust út úr borgarstjórn, Píratar og Flokkur