Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að hann hafi ekki búist við því fyrirfram að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ná meirihluta í Kópavogi. Þetta tekur Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar, tekur undir þetta. „Það var gríðarleg hægribylgja,“ segir hann um sveitarstjórnarkosningarnar um helgina.Þingmennirnir voru til viðtals í Speglinum fyrr í kvöld.Sigurður Ingi benti þar á að það væru nýmæli að Sjálfstæðismenn fengju hreinan meirihluta í Kópavogi. „Ég held að þeir geti sent þakkarskeyti til forsætisráðherra. Ég held að hún geti tekið eitthvað af því til sín,“ sagði hann.Pawel sagði að Framsókn hefði gengið betur víða en hann hefði búist við. Sigurður Ingi tók undir það og sagði að heilt yfir gætu Framsóknarmenn verið sáttir, þótt gengið hefði ekki verið frábært alls staðar.Þ