Ökumaðurinn sem lögreglan stöðvaði för í gærkvöld var mældur á allt að 200 kílómetra hraða á klukkustund. Lögreglan stöðvaði för hans með því að kasta út naglamottu. För ökumannsins lauk þegar hann ók aftan á aðra bifreið á afrein að Breiðholtsbraut. Tvennt var í bílnum sem hann ók á og voru þau flutt á sjúkrahús með minniháttar áverka. Pilturinn var einnig fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka og bíður nú lögregla eftir að geta yfirheyrt hann.