Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Liðka fyrir uppbyggingu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

Viðbyggingar við fjóra verknámsskóla til stækkunar iðndeilda hafa tafist. Vorið 2023 kynnti Ásmundur Einar Daðason, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, áform um að byggja 12-16 þúsund fermetra undir verknám um land allt. Byrjað var við Fjölbrautaskólann í Breiðholti en verknámsskólar á landsbyggðinni bíða enn. Til þess að liðka fyrir framkvæmdum og flýta uppbyggingu hafa Skagfirðingar og skólastjórnendur FNV rætt við ráðuneytið um að þeir haldi utan um framkvæmdina.„Við hjá sveitarfélaginu höfum boðið það fram til að flýta málum að við gætum farið þá leið, það er heimild fyrir því þegar það er samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga, að sveitarfélög megi halda utan um framkvæmdina,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar. FRAMKVÆMDIR Á LANDSBYGGÐ HAFA TAFIST Upphaf
Liðka fyrir uppbyggingu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd