Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og ótvíræður sigurvegari kosninganna í borginni, fundaði í dag með oddvitum allra flokka sem náðu inn manni í borgarstjórn. Við ræðum við Hildi í beinni í kvöldfréttum og heyrum allt um fundarhöld dagsins. Þá mætir stjórnmálafræðingurinn Gunnar Sigurðarson í myndver og fer yfir kostina sem eru í stöðunni og bláu bylgjuna sem reið yfir landið á laugardag.