Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjórir látnir eftir bensínmótmæli í Kenía

Fjórir hafa farist í mótmælum gegn háu bensínverði í Kenía í dag. Yfir 30 eru slasaðir.Mótmælendur, sem flestir eru bílstjórar og samgöngustarfsmenn í verkfalli, lokuðu vegum víða um land sem setti almenningssamgöngur úr skorðum. Þá voru eldar kveiktir í útjaðri höfuðborgarinnar Naíróbí. Lögreglan beitti táragasi á mótmælendur og 348 þeirra voru handteknir.Kenía er mjög háð olíuinnflutningi um Hormús-sund sem hefur nánast stöðvast vegna stríðsins í Íran. Stjórnvöld í Kenía tilkynntu um mikla olíuverðshækkun í síðustu viku, meðal annars 23,5% hækkun á dísilolíu. Það varð til þess að boðað var til verkfalls hjá starfsmönnum í samgöngum. Dísilolía hefur þegar hækkað um 45% frá því stríðið hófst.
Fjórir látnir eftir bensínmótmæli í Kenía
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd