Brynjar Níelsson er aldursforseti nýrrar borgarstjórnar, 65 ára að aldri, hann segist hafa fundið fyrir ákveðnum aldursfordómum í kosningabaráttunni.„Ég myndi nú ekki nota orðið ferskur um mig en ég kem með eitthvað, ég legg eitthvað til málanna.“Framtíðin er það málefni sem Brynjar brennur mest fyrir, að unga fólkið geti komið yfir sig þaki og stofnað fjölskyldu.„Við þurfum að taka okkur á í húsnæðismálum fyrir fólk sem hefur ráð á að kaupa íbúðir og stofna fjölskyldu.“Þegar horft er til meirihlutamyndunar segir Brynjar mikilvægt að skoða hvaða flokka Sjálfstæðisflokkurinn næði mestu fram með, traust á milli forystumanna sé svo lykilatriði.Brynjar Níelsson er aldursforseti nýrrar borgarstjórnar. Hann segir að mörgu að huga þegar kemur að myndun nýs meirihluta.