Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur í dag fundað með oddvitum allra flokka sem náðu kjöri í borginni í sveitarstjórnarkosningunum.Hún segir mikil sóknarfæri fólgin í því hve mikil nýliðun sé í nýrri borgarstjórn. Nú sé tækifæri til að skapa nýja menningu í borgarstjórn. „Betri vinnustað og umhverfi sem fólk ber meira traust til.“Hildur vill ekki tjá sig um það hvort meirihlutasamstarfið hún muni láta reyna á fyrst. Hún hefur áður lýst yfir að augljósustu kostirnir séu annað hvort Miðflokkurinn eða Framsókn og Viðreisn. „Ég ræddi við oddvita þeirra flokka um fleti á samstarfi. Það heldur áfram á næstu dögum.“Fyrirhugað er að ný borgarstjórn taki við 3. júní næstkomandi. „Við höfum þennan mánuð til að ljúka þessum viðræðum,“ segir Hildur.Hildur Björnsdóttir,