Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir hljóðið virkilega gott í flokknum eftir sveitarstjórnarkosningarnar. Flokkurinn fékk 55 sveitarstjórnarfulltrúa kjörna í kosningunum og er flokkurinn því með næst flesta bæjarfulltrúa á landsvísu á eftir Sjálfstæðisflokknum. SAMHLJÓMUR Á MILLI SJÁLFSTÆÐISFLOKKS OG FRAMSÓKNAR Framsóknarflokkurinn missti þrjá fulltrúa í Reykjavíkurborg en Einar Þorsteinsson, oddviti flokksins og fyrrverandi borgarstjóri, heldur sínu sæti.Lilja segir hljóðið í Einari gott og að unninn hafi verið sterkur varnarsigur. Hvað varðar mögulegt meirihlutasamstarf segir Lilja málefnin stýra ferðinni.„Það er samhljómur á milli okkar og Sjálfstæðisflokksins hvað það varðar að það þurfi að fara í breytingar hér í borginni.“Flokkurinn mun einnig leggja áherslu á að