Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, segist hafa áhyggjur af meirihlutaviðræðum í borginni. „Ég vil einn meirihluta fram yfir hinn,“ segir hún og á þá við meirihluta þar sem Sjálfstæðisflokkur vinni með Framsókn og Viðreisn, frekar en Miðflokki.„Ég held að það sé sá valkostur sem er aðeins meiri möguleiki á sátt,“ segir hún. Silja telur að margir Reykvíkingar séu hræddir við samstarf milli Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. „Ég kem sjálf úr skólaumhverfinu og ég veit að kennararnir hafa verulegar áhyggjur af börnunum og hinsegin börnunum sem eru í skólanum.“Silja Sóley er 26 ára og yngsti borgarfulltrúinn í nýrri borgarstjórn. Hún segir það horfa vel við henni. „Ég fékk að læra að ég væri jafn gömul og Davíð Oddsson þegar hann steig sín fyrstu skref. Vonandi verð