Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að í lengri tíma hafi verið í gangi fjársvik þess eðlis að hringt sé í fólk og á línunni sé aðili sem segist vera frá Microsoft og að eitthvað sé að tölvu þess sem hringt er í. Nú hefur orðið sú breyting að símtölin virðist koma frá Íslandi.