Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Milljarða útgreiðslur Sóltúns: Ráðherra telur að takmarka skuli greiðslur út úr hjúkrunarheimilum

Alma Möller heilbrigðisráðherra telur mikilvægt að peningar frá ríkinu sem renna til einkarekinna hjúkrunarheimila eins og Sóltúns fari í reksturinn en ekki í vasa eigenda. Alma var spurð að því hvað henni finnist um það sem heilbrigðisráðherra að eigendur Sóltúns hafi á síðustu árum greitt út 3,2 milljarða króna til hluthafa fyrirtækisins með lækkun á hlutafé þess. Síðasta útgreiðslan upp á 1,2 milljarða króna var síðla árs í fyrra.Alma segir að slíkar útgreiðslur séu að hennar mati ekki heppilegar. „Ég tel ekki óheppilegt að hjúkrunarheimili séu rekin af einkaaðilum að því gefnu að samningar um greiðslur ríkisins séu þannig úr garði gerðir að settar eru skorður á viðkomandi aðila að greiða sér út arð og tryggt verði að fjármunirnir fari eingöngu í rekstur og þjónustu við íbúa.“Fréttastof
Milljarða útgreiðslur Sóltúns: Ráðherra telur að takmarka skuli greiðslur út úr hjúkrunarheimilum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd