Jens Frederik Nielsen formaður landstjórnar fundaði í dag með Jeff Landry fulltrúa Bandaríkjaforseta í málefnum Grænlands og Ken Howery sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku um samskipti landanna. Landry er í þriggja daga heimsókn á Grænlandi á vegum Trumps og Howery kom til Grænlands í morgun. Múte B. Egede utanríkisráðherra Grænlands var einnig á fundinum.Nielsen sagði á blaðamannafundi í Nuuk í dag að fundur þeirra fjögurra hefði farið fram af gagnkvæmri virðingu og á góðum nótum. Þeir hafi ítrekað að það sem stjórnvöld hafi sagt frá upphafi gildi enn þá – það eigi að virða grænlenskt samfélag og að það sé vilji til góðs samstarfs við Bandaríkin.En mörkin hafi líka verið ítrekuð. „Við höfum tjáð afstöðu Grænlands með skýrum hætti. Og við sjáum í fjölmiðlum að stjórnvöld hafa ekki skilið þ