Neyðin kennir naktri konu að spinna segir sagan og 20 og eitthvað er kannski ágætis dæmi um það að finna hagkvæmar og listrænar lausnir þegar peningar til framleiðslu eru af skornum skammti. Þess vegna var sú leið farin að tónlistin, það er að segja lögin í þáttunum voru samin í flæði við handrit þáttanna í stað þess að kaupa inn tónlist frá öðru listafólki. Vigdís Hafliðadóttir og Ragnhildur Veigarsdóttir úr hljómsveitinni FLOTT; ásamt handritshöfundunum og leikurunum Arnóri Björnssyni og Óla Gunnar Gunnarssyni sömdu tónlistina í þáttunum.Vigdís Hafliðadóttir, Ragnhildur Veigarsdóttir, Arnóri Björnssyni og Óli Gunnar Gunnarsson mættu til Atla Más Steinarssonar í Plötu vikunnar til að kynna tónlistina úr grínþáttaröðinni 20 og eitthvað sem er í sýningu á RÚV þessa dagana.