Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sumarveðrið komið en sundlaugin lokuð

Þrátt fyrir að sumarið sé löngu komið á dagatalinu hefur sumarveðrið látið bíða eftir sér. Nú er útlit fyrir að veðrið sé að batna og spáð er blíðviðri um allt land í vikunni. Hitinn gæti mest farið í 16 stig á suðvesturhorninu og 18 stig á norðanverðu landinu.„Já það virðist vera að víða um land verði léttskýjað eða skýjað með köflum og fremur hlýtt að mestu leyti. Næstu daga er von á fremur hægum vindum og blíðviðri í flestum landshlutum,“ segir Hera Guðlaugsdóttir veðurfræðingur.Sundlaugin á Akureyri er ávallt vinæll áfangastaður þegar vel viðrar en nú stendur hún tóm, í orðsins fyllstu merkingu. Ekkert vatn er í lauginni því viðhald stendur yfir fram á föstudag. Það er verið að skipta um línur í botnum lauganna og sinna viðhaldi á fúgum og flísum. Þetta er annað árið í röð sem viðhaldi
Sumarveðrið komið en sundlaugin lokuð
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd