Ótímabært var að afgreiða þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðildarviðræður úr utanríkismálanefnd, að mati Diljár Mistar Einarsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokks sem á sæti í nefndinni.Hún segir að beiðnum um gögn og upplýsinga hafi verið svarað bæði seint og illa og nefndarmenn hafi engar forsendur til að afgreiða málið fyrr en meiri upplýsingar liggi fyrir.Utanríkismálanefnd kom saman á stuttum fundi í morgun og þar var mál 516 - þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu afgreidd út úr nefndinni til annarar umræðu á Alþingi. Að henni lokinni fer málið í atkvæðagreiðslu. SEGIR MEIRIHLUTANN Í SPRENG „Minnihlutinn mótmælti því harðlega,“ segir Diljá Mist um afgreiðsluna. „Við erum enn með útista