Nýr vatnstankur verður tengdur við veitukerfi Kópavogsbæjar annað kvöld. Það hefur áhrif á aðgengi bæjarbúa að köldu vatni. Lokað verður fyrir kalda vatnið klukkan tíu annað kvöld meðan unnið er að tengingu nýja tanksins. Viðbúið er að það taki um fimm klukkustundir. Sundlaugum verður lokað 21:45.Kópavogsbær hvetur fólk til að skúfa fyrir krana með köldu vatni áður en það er tekið af og segir að skynsamlegt geti verið að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum. Einnig gæti verið ráðlegt að setja vatn í fötur fyrir klósett svo hægt sé að sturta niður.Hætt er við að fólk brenni sig ef það skrúfar frá krana því aðeins kemur heitt vatn.Kársnes í Kópavogi.RÚV / Ragnar Visage