Björgunarskip voru kölluð út tvisvar í gærkvöld og í nótt vegna fiskibáta sem lentu í vanda. Annars vegar á Breiðafirði í gærkvöld og hins vegar í Húnaflóa snemma í morgun.Björgunarskipið Björg fór til hjálpar frá Rifi og tók bátinn í tog suður fyrir Snæfellsnes. Þar kom björgunarskipið Kristrún á Bjargi frá Akranesi á móti Björgu og aflvana bátnum.Tveir fiskibátar lentu í vanda, annar þeirra á Breiðafirði í gærkvöld og hinn á Húnaflóa snemma í morgun. Skipstjóri á björgunarskipinu Kristrúnu á Bjargi sagði aðgerðir hafa gengið vel og að kjöraðstæður hafi verið á sjó.Sigurður Ingi Grétarsson, skipstjóri á Kristrúnu á Bjargi, segir aðgerðir hafa gengið vel.„Heyrðu, þetta var bara eins gott og það gerist, sko, bara spegilsléttur sjór og allt gekk vel, við sigldum þrjá tíma út á móti Björginni