Evrópa er sú heimsálfa sem er að hitna hraðast af völdum loftslagsbreytinga og afleiðingarnar eru þegar farnar að hafa áhrif á daglegt líf fólks, segir Katrín Jakobsdóttir, formaður samevrópskrar nefndar um loftslag og heilsu. Nefndin vill að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsi yfir neyðarástandi í lýðheilsumálum vegna loftslagsbreytinga.„Það eru þegar komin fram ýmis merki loftslagsbreytinga sem eru að hafa mikil áhrif á daglegt líf fólks; hitabylgjur, flóð og þurrkar. En við bendum líka á að það eru önnur atriði sem kalla á athygli stjórnvalda sem varða hreinlega ógn við heilsu og öryggi íbúa,“ segir Katrín. Til að mynda geti veiking hafstrauma í Atlantshafi bitnað á fæðuöryggi í norðanverðri Evrópu.„Það er auðvitað staðreynd að við erum búin að vera að eiga við mjög flókin mál í Evrópu