Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Táningur handtekinn eftir ofsaakstur og árekstur

Ökumaður undir tvítugu var handtekinn á ellefta tímanum í gærkvöld eftir að ofsaakstri hans lauk með árekstri.Lögreglu var tilkynnt um akstur piltsins skömmu fyrir klukkan tíu. Þá var hann á Reykjanesbraut á leið frá Suðurnesjum í átt að Hafnarfirði. Lögregla hóf eftirför og reyndi meðal annars að stöðva för bílsins með því að setja út naglamottur í Hafnarfirði og Garðabæ. Þær aðgerðir skiluðu ekki árangri.Pilturinn ók um Hafnarfjörð, þar sem hann fór inn í Áslandshverfi, um Garðabæ og Kópavog áður en hann keyrði inn í Reykjavík. För hans lauk á frárein á Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut. Þar keyrði hann aftan á fólksbíl. Krafturinn var slíkur að báðir bílarnir enduðu utan vegar.Ökumaður og farþegi bílsins sem ekið var á voru fluttir á slysadeild. Meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg.Bíl
Táningur handtekinn eftir ofsaakstur og árekstur
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd