Maður var fluttur með töluverða brunaáverka á Landspítalann í morgun eftir að hafa kveikt í sér. Lögreglan á Suðurnesjum hafði haft afskipti af manninum og beitti rafbyssu til þess að reyna að yfirbuga hann. Lögregla segir að í kjölfarið hafi hann kveikt í sér, eftir að hafa verið búinn að hella yfir sig bensíni.Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, staðfestir í samtali við fréttastofu að maður hefði verið fluttur á Landspítalann, töluvert brenndur um allan líkamann. Lögreglan kallaði sjúkraflutningamenn á vettvang en maðurinn var með meðvitund þegar hann var fluttur af vettvangi.Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum, sem send var út á fjölmiðla eftir að fréttastofa óskaði eftir upplýsingum um málið, kemur fram að maðurinn hafi ekki farið að fyrirmælum lögreg