Miklar tafir á umferð hafa verið á Suðurlandsvegi við Hólmsá vegna vegaframkvæmda en verið er að fræsa og malbika veginn. Framkvæmdirnar hófust klukkan níu í morgun á Suðurlandsvegi við Hólmsá og standa til klukkan fimm. Upphaflega stóð til að malbika báðar akgreinar Suðurlandsvegar í dag en verklaginu hefur hins vegar verið breytt vegna þeirra tafa sem hafa orðið á umferðinni segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Á samfélagsmiðlum hafa vegfarendur varað við töluverðum töfum. Umferð hefur verið stýrt fram hjá framkvæmdum og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar.Til stendur að malbika aðra akrein Suðurlandsvegar í dag en hin akreinin verður malbikuð að nóttu til. Nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður ek