Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bænum, segist hafa búist við auknu fylgi í kosningabaráttunni. Flokkurinn, sem hlaut 58% atkvæða, bætti við sig 9% á milli kjörtímabila og einum manni, en hann fékk átta fulltrúa kjörna.