Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íranar hafa svarað tillögum Bandaríkjanna

Frá Tehran.EPA / ABEDIN TAHERKENAREHÍranar hafa svarað nýrri tillögu Bandaríkjamanna um frið í landinu. Þetta sagði Esmaeil Baqaei talsmaður utanríkisráðuneytis Íran á blaðamannafundi í morgun. Íranskir fjölmiðlar hafa lýst kröfum Bandaríkjanna sem óhóflegum, en þrátt fyrir það sagði talsmaðurinn að samskipti væru enn í gangi með aðstoð Pakistana.Baqaei sagði jafnframt að tækniteymi frá Íran og Óman hefðu hist í Óman til að semja um öruggt flutningskerfi um Hormús-sund. Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á Truth Social í gær að klukkan tifaði og þeir þyrftu að bregðast hratt við, annars verði ekkert um að semja.
Íranar hafa svarað tillögum Bandaríkjanna
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd