Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tilefni til að breyta kosningalögum svo að hefja megi talningu fyrr

Yfirkjörstjórn í Reykjavík telur tilefni til þess að stjórnvöld endurskoði kosningalög þannig að heimilt verði að telja atkvæði fyrr. Samkvæmt kosningalögum má ekki byrja að telja atkvæði fyrr en kjörstöðum hefur verið lokað á kjördag.„Ég held að það væri fullt tilefni til þess að skoða þetta og ekki síst að spyrja hvernig standi á því að sum sveitarfélög geti komið með fyrstu tölur mjög snemma eftir tíu, þegar það er beinlínis mælt fyrir um það í kosningalögunum að það megi ekki byrja að telja fyrr en eftir tíu,“ segir Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík.Í yfirlýsingu yfirkjörstjórnar í Reykjavík um kosningaúrslit segir að hún leggi þetta til „í ljósi reynslu af kosningunum“. Við yfirferð hafi komið í ljós misræmi milli lesinna talna á kjörfundi og talinna atkvæða ve
Tilefni til að breyta kosningalögum svo að hefja megi talningu fyrr
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd