Vísbendingar um að lykilhringrás í hafinu í kringum Ísland sé að veikjast vegna hnattrænnar hlýnunar eru svo afgerandi að stórauka þarf aðgerðir til að draga úr losun, að mati ráðgjafa íslenskra stjórnvalda. Of seint verði að koma í veg fyrir hrun hringrásarinnar þegar fullvissa um þróun hennar liggur fyrir.