Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ræða samgöngur milli lands og Eyja

Samgöngur til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar verða efni opins fundar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis heldur í dag. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra verður gestur fundarins. Fundurinn hefst klukkan þrjú í dag.Mikið verður um að vera í salarkynnum Alþingis í dag þar sem þingnefndir funda í gríð og erg áður en þingfundir hefjast á ný á miðvikudag. Hlé var gert á þeim í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.Meðal þess sem gerist í dag er að utanríkismálanefnd fjallar um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður.Herjólfur í Þorlákshöfn.RÚV / Guðmundur Bergkvist
Ræða samgöngur milli lands og Eyja
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd