Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Seldu ungmennum áfengi

Lögreglan á Akureyri fór á skemmtistaði og veitingastaði um helgina til að kanna hvort starfsemin væri alfarið í samræmi við lög. Flestir voru með sitt á hreinu en á einum stað var verið að selja fólki undir tvítugu áfengi og á öðrum var dyravarsla ekki í lagi.Helgin var með hefðbundnum hætti, nokkur minniháttar útköll tengd ölvun. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur um helgina og fimm fyrir að keyra of hratt.Aðfaranótt laugardags var lögreglu tilkynnt um að maður með hníf væri að taka í hurðarhúna. Þegar að var gáð reyndist sá ótti ekki eiga við rök að styðjast.Lögreglustöðin á Akureyri.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Seldu ungmennum áfengi
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd