Útlit er fyrir fínasta veður víðast hvar á landinu í dag. Veðurstofan spáir hægri austlægri eða breytilegri átt, bjartviðri og allt að 14 stiga hita. Það er helst austan til að fólk verði af sólinni því þar þykknar upp eftir hádegi með dálítilli rigningu eða súld. Á Austfjörðum verður þokuloft af og til.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðaustlæg eða breytileg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu, og yfirleitt bjart, en þykknar upp með dálítilli rigningu eða súld austantil síðdegis.Austan og norðaustan þrír til átta á morgun og skýjað með köflum og þurrt að kalla, en rigning á austanverðu landinu. Stöku skúrir síðdegis sunnan- og vestanlands.Hiti 4 til 14 stig að deginum, svalast við austurströndina.Hæg norðaustlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og smáskúrir á stöku stað næstu daga. Hiti 4