Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Amnesty: Ógnvekjandi fjölgun aftaka í Íran keyrir upp fjölda skráðra aftaka

Yfir 2.150 manns voru teknir af lífi í Íran á síðasta ári, tvöfalt fleiri en árið áður. Það segja mannréttindasamtökin Amnesty International vera „ógnvekjandi“ fjölgun sem hefur leitt til þess að skráðar aftökur þar og um allan heim hafa ekki verið fleiri síðan 1981. Samtökin segjast hafa fengið staðfestar minnst 2.707 aftökur um heim allan árið 2025, sem sé meira en tveggja þriðju aukning samanborið við heildarfjöldann 2024. Þau segjast gruna kínversk stjórnvöld um að lífláta þúsundir ár hvert, þær upplýsingar fara Kínverjar með sem ríkisleyndarmál. Amnesty lítur á Kína sem það ríki sem beitir dauðarefsingum í mestum mæli. ÞRÓUNIN STERKUST Í RÍKJUM ÞAR SEM VALDHAFAR HERÐA TÖKIN Samtökin segja þróun til harðari refsinga sterkasta í löndum þar sem yfirvöld hafa hert valdatök með því að t
Amnesty: Ógnvekjandi fjölgun aftaka í Íran keyrir upp fjölda skráðra aftaka
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd