Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hið minnsta tveir týndu lífi í öflugum jarðskjálfta

Hjón á miðjum aldri fórust þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,2 reið yfir kínverska héraðið Guangxi skömmu eftir miðnætti í gær að staðartíma. Kínverska ríkissjónvarpsstöðin CCTV greindi frá og segir yfirvöld hafa flutt á áttunda þúsund brott frá jarðskjálftasvæðinu.Eins er saknað eftir að þrettán byggingar hrundu í borginni Liuzhou að sögn Xinhua-fréttaveitunnar. Björgunarsveitir nota þefhunda við leitina.Í fréttum CCTV má sjá fólk á flótta innan um hrundar byggingar og brak af ýmsu tagi. Jarðskjálftar eru tiltölulega algengir í Kína. Að minnsta kosti 126 týndu lífi og mikið eignatjón varð í hörðum jarðskjálfta sem reið yfir Tíbet í janúar á síðasta ári.
Hið minnsta tveir týndu lífi í öflugum jarðskjálfta
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd